Stjörnustál er stálsmiðja sem stofnuð var árið 2004. Hjá Stjörnustáli vinna að jafnaði 6-8 manns auk verktaka sem við erum í nánu samstarfi við.
Við tökum að okkur alla almenna stálsmíði, hvort sem er nýsmíði, viðhald, eða viðgerðir og vinnum við jafnt á stáli, áli eða rústfríu efni.
Stjörnustál tekur að sér meðal annars smíði og uppsetningu á stigum, innréttingum, girðingum, hillum og rekkakerfum og hverju öðru sem viðskiptavinir þurfa.
Stjörnustál hefur komið víða við og þurft að leysa mörg vandamál og erum við því óhræddir við að takast á við spennandi verkefni.
Starfsemin er stöðugt í þróun og þróum við okkur í takt við óskir viðskiptavinarins og erum tilbúnir að fylgja honum í hans þróun á starfseminni hvort sem um er að ræða eldri rótgróin fyrirtæki eða nýja frumkvöðla.
Ein nýjung hjá okkur er að nú bjóðum við upp á stálgrindarhús, klæðningar, glugga og hurðir frá rótgrónum framleiðanda í Tyrklandi.
Stjörnustál annast viðhald fyrir Samskip, Húsasmiðjuna, Skeljung og fleiri.
Þar sem yfirbygging Stjörnustáls er lítil og ákvarðanaferli stutt þá getum við boðið ykkur mikinn hraða og lágmarks óþarfa tafir. Við óskum eftir því að geta hafið samstarf við ykkur.
Grétar Jón Elfarsson, framkvæmdastjóri, farsími: +354 666 1122
Stjörnustál er stálsmiðja sem stofnuð var árið 2004. Hjá Stjörnustáli vinna að jafnaði 6-8 manns auk verktaka sem við erum í nánu samstarfi við.